Örvitinn

íslenskir nasistar

Er til eitthvað sorglegra en nasistar á vorum tímum? Afneita helförinni með þeim rökum að ekki hefði verið hægt að myrða sex milljón manns í gasofnum og að ekki hefði verið hægt að brenna öll þessi lík.

Hér er smá fróðleiksmoli. Einungis brot af þeim Gyðingum sem voru myrtir í síðari heimsstyrjöld lét lífið i gasofnum. Lang flestir voru skotnir og lík þeirra grafin í fjöldagröf.

Flóknara er nú ekki svarið við þessum rökum nasistanna.

Hvað ætli sé annars að þessu liði? Ég er næstum því viss um að þetta er eitthvað ójafnvægi í heilanum sem hægt er að laga með réttum efnablöndum.

ps. Ég ákvað að vera ekkert að linka á nasistana. Vill ekki tengja á þetta hyski. Trúið mér, þeir segja ekkert merkilegt.

dagbók