Örvitinn

ruglað

Ég ætla að horfa á leik Liverpool og Aston Villa ruglaðan á Stöð2. Hvernig væri nú að Liverpool taki sig til og bursti Aston Villa í dag? Góðu fréttirnar eru þær að Liverpool byrjar með Mellor, Owen og Diouf inná. Það hlýtur að þýða að nú verður sótt af krafti.

Aston Villa hefur ekki skorað í síðustu ellefu útileikjum.

Það hlýtur að vera hægt að sigra þá.

boltinn