Örvitinn

gulrætur

Ég var orðinn svo svangur í gærkvöldi að ég fékk mér tvær gulrætur. Ég er nú ekki þekktur fyrir slíkt. Þær voru reyndar ansi góðar, ég verð bara að segja það. Auk þess merkilegt hvað tvær litlar gulrætur geta slegið á hungrið.

Það sem gerðist náttúrulega hjá mér yfir hátíðarnar er að ég borðaði oftar yfir mig. Ég er viðkvæmur fyrir slíku.

En átakið er í gangi. Þetta er ekkert mál.

dagbók