Örvitinn

nætursögur

Ég er í vinnunni og verð eflaust eitthvað áfram. Ekki komst ég í World Class í gær.

Málið er semsagt að á morgun þurfum við að skila af okkur forsölu útgáfu af EVE. Sú útgáfa fer á geisladisk og verður seld þeim sem ekki geta beðið eftir að fá skammtinn sinn.

Að sjálfsögðu virkar heimurinn þannig að daginn fyrir skil koma í ljós villur sem þarf að laga. Ég er loksins núna að finna út hvað er í gangi. Það er alltaf ágætt að vita hvað er að svo maður geti lagað það :-)

Auk þess þarf ég að ganga aðeins frá setup forritinu fyrir þessa forútgáfu. Bæta við dóti á Start menu og opna vefsíðu eftir að uppsetningu lýkur.

dagbók