Örvitinn

nætursögur

Inga María var óskaplega hissa á stemmingsleysi foreldra sinna og systur þegar hún vaknaði hress og kát í nótt. Að lokum flúðum ég og Kolla yfir í rúmið hennar Kollu og sváfum þar það sem eftir var nætur. Sem betur fer á Kolla þokkalega stórt rúm.

Gyða sofnaði ekki fyrr en um sex, sagði hún mér í morgun í örstuttum samningaviðræðum okkar um hvort ætti að fara á fætur með Áróru. Hún hafði betri spil á hendi, ég fór á fætur.

Ég sit hér heima og bíð eftir að Kolla vakni, ætla að leifa Gyðu og Ingu Maríu að sofa eins lengi og mögulegt er.

dagbók