Örvitinn

ennþá heima !

Ég er ennþá heima, Gyða er að leggja sig og Inga María sefur úti í vagni. Við eigum svo pantaðan tíma hjá barnalækni klukkan tvö, þannig að ég skýst í vinnuna þá. Ekki samt í langan tíma, þar sem ég fer að aðstoða Davíð við flutninga klukkan fimm. Mæti aftur til vinnu eftir það og verð frameftir.

Rippaði Ten með Peal Jam áðan, það er magnað verk. Ég hlusta eiginlega aldrei á tónlist nema í vinnunni þessa dagana, þannig að það er ekki vit í öðru en að rippa diskana mína og skella þeim á tölvuna í vinnunni. Ennþá vantar mig að koma höndum yfir nýjasta disk þeirra Peal Jam manna.

dagbók