Örvitinn

jæja

Ég svaf í sófanum í sjónvarpsstofunni í nótt. Gyða var að vinna í svefnmálum Ingu Maríu.

Fyrst ég er að vísa á dagbókina hennar Gyðu verð ég að benda á þessa færslu. Þegar Gyða fór aftur að vinna eftir að hafa átt Kollu var ég heimavinnandi í tvo mánuði og svo hálfan dag í einhverja mánuði í viðbót. Það var afskaplega dýrmætur tími. Það var frábær tími. Ég sakna þess stundum að hafa ekki fengið tækifæri til að eyða sama tíma með Ingu Maríu.

dagbók
Athugasemdir

Eggert - 29/01/03 23:41 #

Ég vil benda þér á að orðin 'afskaplega dýrmætur tími' eru stolin frá forseta lýðveldisins.

Matti - 30/01/03 00:38 #

Takk fyrir ábendinguna, þetta hefur verið lagfært.