Örvitinn

jæja

Ég svaf í sjónvarpsstofunni í nótt meðan Gyða hélt áfram svefnátaki Ingu Maríu. Vaknaði svo með Áróru í morgun en skyldi hana eftir til að hugsa um sig sjálfa!! og skellti mér í World Class. Tók þar ágætis æfingu.

Þyngdartala dagsins er óþarflega há, hefur reyndar verið þannig síðustu daga. Þetta er náttúrulega ekkert annað en mataræðið. Ég má ekki éta skyndibita þrjú kvöld í röð eins og gerðist mánudags, þriðjudags og miðvikudagskvöld. Hér eru þyngdartölur fyrir janúar. Síðustu þrír mánuður og þróunin frá því í ágúst (þegar ég byrjaði að vigta mig daglega)

Nóg að gera í vinnunni (en ekki hvað)....

dagbók
Athugasemdir

Regin - 31/01/03 11:33 #

Greinilegt að karlinn hefur verið rólegur síðustu 3 mánuði. Þetta er samt í lagi meðan línan er ekki að leita upp á við!

Matti Á. - 31/01/03 11:42 #

Ég er ekkert að stressa mig á þessu meðan ég þyngist ekki, er svosem í sæmilegu formi í dag en ég þarf að koma mér aftur á sama skrið og ég var í ágúst-september en þá var ég að léttast frekar stöðugt.