Örvitinn

spilakvöld

Ég, Gyða og Áróra spiluðum LOTR Risk í gærkvöldi. Spiluðum bara með hefðbundnum reglum og áttum reyndar í mestu vandræðum með að rifja upp reglurnar. Held við höfum verið komin með þetta á hreint um það b

Ég keypti gos og snakk, endaði svo með því að borða heilan snakkpoka sjálfur :-( sem útskýrir uppsveiflu dagsins í dag.

Gyða fór full geist af stað í spilinu, réðst á mig þar sem ég var með varnir hvað sterkastar, komst ekki í gegnum þær og átti sér aldrei viðreisnar von eftir það. Áróra spilaði ekkert mjög taktískt heldur, þannig að ég vann þetta með nokkrum yfirburðum.

Ég fór svo á fætur með Kollu og Ingu Maríu í morgun. Gaf þeim morgunmat og svo fengu þær smá snakk í sófanum. Það þykir þeim ekki slæmt, eiga dáldið erfitt með að hætta í því. Ég skil þær vel.

dagbók