Örvitinn

rausið

Mættur í vinnu hálf tólf annan daginn í röð. Það er svosem í lagi meðan maður er hérna tólf tíma hvort sem er.

Fór í World Class í morgun og tók vel á fótum, spái harðsperrum á sunnudag.

Þrír dagar í Goldmaster, ég verð lítið heima um helgina.

Gyða fer aftur í starfsviðtal í dag. Á meðan verður Inga María hjá mér í vinnunni. Hún þroskast óskaplega hratt þessa dagana. Farin að labba út um allt og ný orð bætast i orðaforðann á hverjum degi.

Kannski sé ég hana bara svona lítið þessa dagana, hæg þróun verður að stórum stökkum ef maður stiklar á stóru !!

Nscrd þarf ekki að hafa áhyggjur af því að hann sé að taka yfir dagbókina mína. Þér er velkomið að setja hér inn athugasemdir þegar þú kýst. Ef ég fæ leið á þér eyði ég athugasemdunum bara út og loka á þig ;-)

dagbók