Örvitinn

rauðvín og eyrnaverkir

Í gærkvöldi var boðið upp á nautakjöt og rauðvín hjá CCP. Rauðvínið rann ljúflega niður. Áfengisdrykkjan í gær veldur lágri þyngdartölu dagsins.

Ég og Gyða fórum á skemmtun í leikskólanum hennar Kollu áðan. Krakkarnir sungu og léku leikrit. Á eftir fengum við smákökur sem þau höfðu bakað.

Kollu verkjar í öðru eyranu. Hélt um eyrað á skemmtuninni í morgun og við ákváðum að taka hana heim. Ég fer með hana til læknis klukkan hálf tvö.

Hún situr fyrir fram sjónvarpið og horfir á Herkúles, eyrað virðist ekki vera að trufla hana núna.

dagbók