Örvitinn

fikt í dagbókarkerfi

Er aðeins að fikta í dagbókinni. Núna munu einungis síðustu þrjár dagbókarfærslur birtast í heild sinni á forsíðu. Úrdráttur úr næstu sautján færslum verður á síðunni líka.

Ég þarf að finna einhverja aðferð til þess að losna við "Meira..." linkinn úr þyngdarfærslum. Um leið og ég finn þá aðferð get ég sleppt þyngd (og hverju sem er svosem) úr .rss yfirlitunum.

Var að detta í hug aðferð, prófa hana á eftir.

22:00
Þetta er ekki flókið en virkar. Ef ég vill ekki að útdráttur komi á þessa síðu passa ég að færslan sé ekki pingable. Þá mun hún heldur ekki koma fram í rss yfirlitinu. Þetta gerir það t.d. að verkum að þyngdartölur koma ekki fram í yfirlitinu.

Nú ætla ég að prófa að skrá vefinn á molana og sjá hvað gerist. Vonandi fer ég ekki að ritskoða sjálfan mig.

movable type