Örvitinn

aum æfing

Þetta var nú ekki merkileg æfing hjá mér í World Class áðan, tók hendur og axlir, smá maga í lokin. Sleppti því að skokka eftir tímann enda er ég að drepast úr harðsperrum í lærum akkúrat núna.

Vonandi verð ég orðinn þokkalegur í lærunum annaðkvöld þar sem ég er að fara að spila æfingaleik með Henson gegn Hvíta Riddaranum en þeir unnu utandeildina síðasta sumar og ættu því að vera með þokkalegt lið.

heilsa