uppáhalds trúarnöttarinn minn
Uppáhaldstrúarnöttarinn minn þessa dagana er bro á strikinu. Hann á svo bágt með sig greyið. Sífellt að lenda í rökræðum við sjálfan sig þegar grannt er skoðað.
30.03.03 skrifar hann á strikið
Ég nenni ekki lengur að deila við ofstækisfulla vísindahyggjumenn.Menn með glampa í augum og sannleikan í rassvasanum sérstaklega vegna þess að þeir sem ég hef deilt, tala fjálglega um stórasanleika vísindanna án þess að sýna þess nokkur merki að vera vel að sér í þeim fræðum
En svo næstu daga gerir hann ekkert annað en að rökræða við okkur ofstækisfullu vísindahyggjumennina
Ég skil hins vegnar vel að haturmenn kristinnar trúar vilji gjarnan útbreiða þann miskiling að þessi bók sýni krisni eins og hún sé í raun og veru.
Æi, manni getur ekki annað en þótt vænt um þetta lið.