Örvitinn

kvöldið

Ég kom heim átta í kvöld, Gyða skellti sér á kaffihús með vinkonum sínum. Ég komKollu og Ingu Maríu í rúmið. Gekk furðu vel að svæfa Ingu Maríu í þetta skiptið.

Sit núna og veit ekki hvað ég á að gera. Búinn að lesa internetið! sjá sömu fréttirnar þrettán sinnum á CCN og Sky News. Nenni engu.

Mér leiðist.

23:00
Jæja, smá fjör færðist í leikinn. Inga María vaknaði og vildi mömmu sína. Með smá klækjum tókst mér að svæfa hana aftur.

dagbók