Örvitinn

veðrið

Hvenær ætli maður venjist þessum veðrasveiflum hér á skerinu. Í gær var sól og blíða og fyrsta grillmáltíð ársins.

Í morgun þegar ég fór á fætur með stelpunum skein sólin og ég ákvað að hjóla í vinnuna í dag. Var farinn að hlakka til að dusta rykið af fáknum. En það verður ekkert af því, snjó kyngir niður og allt orðið hvítt

dagbók