Örvitinn

hjólaði í ræktina í morgun

Hrikalega er ég ánægður með það að hafa hjólað í World Class í morgun. Tók fína æfingu, góða sturtu! og hjólaði svo í vinnuna. Vonandi verður ekki vont veður í kvöld svo ég nenni nú að hjóla heim aftur. Ef veður verður vont tek ég strætó. Handklæðið og bolurinn hanga til þerris hér fyrir utan. Það er ekki laust við að ég komist í sumarskap við þetta. Um leið er ég sannfærður um að ég á eftir að lenda í stórhríð á hjólinu á næstu dögum :-)

Eftir vinnu í gær hjólaði ég til foreldrahúsa, Gyða og stelpurnar mættu svo þar á eftir mér. Pabbi var að sjálfsögðu búinn að grilla :-|

Hjólaði heim í gærkvöldi, nokkuð létt og þægilegt þó ég hafi þurft að finna mér nýja leið vegna framkvæmdanna hjá Staldrinu (ekki nesti).

heilsa