Örvitinn

Þetta er ekki plokkfiskdagur

Það verður boðið upp á plokkfisk í kvöldmatnum í vinnunni. Þetta hlýtur að vera misskilningur, í dag er ekki plokkfiskdagur.

Sól, hiti og plokkfiskur. Nei, það gengur ekki upp.

Ég ætla að fá mér eitthvað annað. Mér þykir plokkfiskur alveg ágætur, get bara ekki hugsað mér að borða hann í dag.

Hvað borða bændur þá?

18:55
Það verður seint sagt að ég sé maður orða minna. Fékk mér plokkfiskinn og kúrbítsgratín. Kúrbítsgratínið heillaði. Vil helst ekkert vera að nefna það að ég fékk mér ís í desert. Þetta er nefnilega dálítill ísdagur.

matur