Örvitinn

Fjórtán tímar

Þá er lokaspretturinn hafinn. Kom heim fimm í morgun og náði rúmlega sjö tíma svefni sem er fínt. Næsti lúr planaður seinni partinn á morgun.

Pantaði mér pizzu með tvöföldum skammti af pepperoni í kvöldmat. Þær kaloríur ættu að halda mér gangandi eitthvað fram á nótt. Magic tekur við þegar líður á nóttina. Einhvern tíman las ég að pizza með pepperoni væri feitasti skyndibitinn á markaðnum, held það hafi bara verið einfaldur skammtur.

Ég er hræddur um að nóg verði að gera næstu daga en fjandinn hafi það, leikurinn verður kominn út. Það verður þrammað ofan á helvítis fjallinu, ekki upp hlíðina.

Í tækinu, Vulgar Display of Power með Pantera.


There comes a time within everyone to
close your eyes to what's real
No comprehension to fail
I vacuum the wind for my sail
Can't be the rest
Let others waste my time
Owning success is the bottom line.
Like a knife into flesh
After life is to death
Pulling and punching the rest of duration
NO ONE can piss on this determination

dagbók