Örvitinn

Magic er meira sullið

Ég er ennþá nokkuð sprækur. Búinn að drekka dáldið mikið af magic í nótt, át sælgæti snemma í nótt en fékk mér svo skyr áðan.

Magic veldur mjúkum hægðum, það er alveg ljóst. Þetta er fínt slógan fyrir þá, Drekktu magic, magic veldur mjúkum hægðum

Héðan er allt fínt að frétta, þetta gengur allt samkvæmt áætlun (ha, hvaða áætlun ;-)

Í nótt er ég búinn að endurnýja kynni mín við meistaraverkið Master of puppets. Útvarp Reykjavík var að spila hana um daginn þegar ég var í ræktinni og ég fékk Andrés til að redda mér verkinu áðan. Djöfulsins snilld.

dagbók
Athugasemdir

Regin - 06/05/03 09:29 #

Sæll Matti. Til hamingju með að vera búin að landa þessari risa lúðu :) Verður leikurinn til sölu hér á skerinu í dag eða á morgun?

Matti Á. - 06/05/03 09:43 #

Hann fæst í Skífunni núna. U.þ.b. tuttugu manns í röð fyrir utan Skífana áðan.