Örvitinn

Myndir

Setti inn myndir. Þar má meðal annars sjá nokkrar myndir frá deginum sem EVE kom út. Reyndar tæmdust hleðslurafhlöður snemma um nóttina og ég keypti ekki nýjar fyrr en eftir níu um morguninn, þannig að ekki eru mjög merkilegar myndir þarna. Þó má sjá myndir af sælgætissamkomunni á grafíkhæðinni og einnig er þarna mynd af því þegar guttarnir komu til að fá eiginhandaáritanir (ekki hjá mér þó!)

Myndirnar eru ekki í réttri tímaröð þar sem það hafði gleymst að stilla tímann síðast þegar myndavélin varð batteríslaus. Gyða tók mynd af mér og Ingu Maríu þar sem við sváfum um miðjan dag.

Bæti inn fleiri myndum undir liðinn "hitt og þetta" þegar ég kem heim, eitthvað af myndum í myndavélinni.

dagbók
Athugasemdir

JBJ - 13/05/03 20:10 #

LOL.. má ég fá eiginhandaráritun frá þér! Yrði one-of-a-kind :þ

Matti Á. - 14/05/03 14:46 #

Ég er alltaf jafn hissa á því að enginn biðji mig um eiginhandaáritun. Hvernig stendur á því að enginn stoppar mig á laugaveginum, truflar mig í strætó eða tekur mynd af mér þar sem ég spila fótbolta.

Ég er misskilinn, það er málið. Óuppgötvuð stjarna :-)