Örvitinn

Router vesen

Routerinn hjá CCP er að gefa sig, sambandið við umheiminn frekar gloppótt eins og er. Það tókst þó að uppfæra serverinn áðan svona á meðan sambandið datt inn. Getum svo ekkert spilað sjálfir og eigum erfitt með að fylgjast með. Símaliðið hefur auga með þessu.

Held það sé verið að stinga nýjum router í samband, vona það. Kannski búið, a.m.k. er ég tengdur í augnablikinu.

13:30
Ég var ekki fyrr búinn að senda þetta inn en að sambandið datt út aftur.

Málið er semsagt að serverinn minn er líka á bakvið þennan router, þannig að hann dettur inn og út af netinu.

tölvuvesen