Stefnumótun kirkjunnar - helstu veikleikar
Þegar Kirkjunnar menn vinna stefnumótunarvinnu og ræða styrkleika og veikleika Kirkjunnar nefna þeir sem styrkleika hjálparstarf, þjónustu við aldraða og fleira . Veikleikar Kirkjunnar felast í skipulagi hennar, restin heyrðist mér felast í að þjóðin væri ómöguleg fyrir Kirkjuna, siðlaus þjóð hentar ekki þessari Kirkju.
En ætli engum hafi dottið í hug að velta einu fyrir sér þegar rætt var um veikleika Kirkjunnar. Datt engum í hug að nefna að Kirkjan snýst um ævaforn hindurvitni og galdraathafnir? Datt engum í hug að velta því fyrir sér að það er eitthvað fáránlegt við að á þessum tíma sé til ríkisstofnun (þetta er ekkert annað en ríkisstofnun) sem gengur út á að boða kjaftæði?
Hér er mitt framlag til stefnumótunarvinnu Kirkjunnar. Kirkjumönnum veiti ég hérmeð heimild til að nýta þetta í vinnu sinni.
Veikleikar Kirkjunnar
- Trúgirni
- Fégræðgi
- Íhaldsemi
- Fordómar gagnvart
- Samkynhneigðum
- Trúlausum
- Vísindum
- Meiri trúgirni
- Biblían
- Biskupinn