Örvitinn

Staðan á Ingu Maríu

Inga María svaf nokkuð vel síðustu nótt. Gyða gaf henni verkjalyf áður en ég kom heim úr boltanum og fór eitthvað til hennar.

Hún vaknaði svo um hálf tvö og vildi fá mömmu sína fyrst Gyða hafði komið til hennar fyrr um kvöldið, gafst þó upp að lokum og sofnaði aftur og svaf held ég til morguns. Hún var svo hress í morgun allt þar til við komum til dagmömmunnar en þá varð hún eitthvað hvekkt :-(

prívat