Örvitinn

Dagurinn í dag

Kolla og Inga María voru ekkert á því að sofa frameftir í morgun og fóru á fætur um sjö leitið. Ég skutlaði þeim á leikskóla og til dagmömmu en fór svo heim aftur. Tók tjaldið okkar og hengi það upp í bílskúrnum til þerris. Dundaði mér við að reyna að koma simnet póstinum mínum í gang, tókst það að lokum með hjálp Badda kerfisstjóra CCP. Í kvöld kláraði ég svo að færa póstinn yfir.

Skellti mér í ræktina og tók góða æfingu en það hef ég ekki gert í alltof langan tíma. Skokkaði í 20 mínútur í lokin og fann ekkert fyrir því þannig að vonandi er ég þokkalegur í lærinu, stefni á að spila bikarleik með Henson annað kvöld.

Ég hef það ágætt, ekki hafa áhyggjur.

prívat