Örvitinn

Kewell leikur með Liverpool

Allt virðist frágengið varðandi kaup Liverpool á Harry Kewel, Leeds er búið að tilkynna söluna til hlutabréfahallarinnar. Þetta virðist hafa verið einhver sápuópera og Leedsarar eru hundfúlir. Samkvæmt því sem þeir segja borgar Liverpool fimm milljón pund fyrir Kewell en þar af fær Kewell og umboðsmaður hans tvær milljónir, einungis þrjár milljónir enda í bankareikningi hins stórskulduga knattspyrnufélags Leeds.

Mér er reyndar nokkuð sama um þessa sápuóperu alla, ég fagna því að Harry Kewel er kominn til Liverpool og ég hlakka til næsta tímabils.

Kemur Kewell til Liverpool?

boltinn