Örvitinn

Kolla komin í frí

Jæja þá er Kolla líka komin í sumarfrí. Hún sefur ennþá, ég og Inga María erum niðri í sjónvarpsstofu að dunda okkur, Inga María horfir á stubbana (sem mamma hennar setti í tækið í morgun) og borðar liti (tja, þar til pabbi hennar bað hana vinsamlegast um að hætta því).

Ég veit ekki alveg hvernig dagurinn verður, þarf bara að passa að fara út með þær og leifa þeim að leika sér. Taka með mér eitthvað að lesa, þær sjá nú mest orðið um að leika sér sjálfar.

dagbók prívat