Örvitinn

Leti er þetta

Eitthvað gengur mér og stelpunum illa að koma okkur af stað í dag, Inga María er næstum því klædd en Kolla er á bossanum! Reyndar finnst þeim voðalega gaman að fá að dunda sér svona frjálslegar og ég kann ósköp vel við að gera ekki neitt, en nú er nóg komið.

Ætlum að skjótast í Elkó að kaupa nýja ryksugu, kíkja svo í bónus og kaupa bleyjur. Jafnvel er ég að spá í að koma við hjá Og Vodafone og sjá hvort það sé möguleiki á að fá GPRS til að virka, eitthvað gengur það illa þau ég hafi fengið nýtt símakort í gær.

Rúmfötin hennar Kollu eru í þurrkaranum, smá slys í nótt. Reyndar klaufaskapur í mér og Gyðu, gleymdum að vekja hana til að pissa í gærkvöldi. Jæja, ég er farinn að leita að fötum.

dagbók prívat