Örvitinn

Djöfull er ég þreyttur

Ég er alveg að detta útaf, samt var þetta ekki átakamikill dagur. Tókst að fá GPRS til að virka með gemsanum mínum og Og Vodafone í dag en fæ Azure samt ekki til að virka. Kallið fer reyndar á serverinn og hann skilar 200 (sem þýðir að allt sé í lagi) en Azure segir að eitthvað hafi farið úrskeiðis. Ég var svo að renna í gegnum Azure source kóðann og sé að það ætti ekki að vera mikið mál að skila betri villuskilaboðum. Ég þarf að komast að því hvernig ég þýði þetta stuff, held það sé ekkert stórmál.

Ég ætla upp í rúm að lesa dáldið í the bug áður en ég sofna.

prívat