Örvitinn

Ylströndin

Ég verð að hrósa R-listanum fyrir ylströndina í Nauthólsvík, þó þeir hafi klúðrað ýmsu er ylströndin snilldar framtak. Eflaust eru margir frjálshyggjumennirnir sem sjá eftir aurunum (ok. milljónatugunum) sem í þetta hafa farið en ég er ekki einn þeirra.

Ég, Kolla og Inga María fórum í morgun (ég tók nokkrar myndir) og skemmtum okkur stórvel. Busluðum í sjónum, lékum okkur á ströndinni og enduðum í lauginni fyrir framan afgreiðsluna.

Að lokum fórum við í kaffi Nauthól og borðuðum ágætis hádegismat. Á heimleiðinni þverneitaði Inga María að hún ætlaði að leggja sig heima, sofnaði svo í bílnum. Mér tókst að bera hana upp í rúm þar sem hún sefur. Kolla er úti að leika sér, dáldið einmana samt þar sem það eru engir krakkar á hennar aldri hér fyrir utan.

dagbók
Athugasemdir

Már Örlygsson - 18/07/03 16:47 #

Fyndið ég var einmitt að segja þetta áðan. Hefði Sjálfstæðisfokkurinn slysast til að klístra þessari strönd þarna þá hefði ég ábyggilega neyðst til að kjósa þá bara fyrir það eitt. :-)

Strákurinn minn var þarna í gærdag með ömmu sinni og afa og skemmti sér konunglega.

Kata - 18/07/03 23:32 #

Ég þarf að koma með þér næst Matti minn, upplagt fyrir svona heimavinnandi húsmæður eins og okkur!

Matti - 19/07/03 12:11 #

Ef það verður gott veður í næstu viku var ég búinn að lofa Gyðu að við færum saman á ylströndina, stelpurnar fá líka að koma með :-), þú kemur bara með okkur þá.

Kata - 20/07/03 09:14 #

Mikið líst mér vel á það. Hljómar rosalega vel. Ég mun bíða við símann : )