Örvitinn

Tilgangur lífsins - Morgunblaðsgrín?

Ég rakst á afskaplega furðulega grein í Mogganum í dag. Þar skrifar Ívar Páll Jónsson blaðamaður grein um tilgang lífsins og lofar Gvuð kristinna manna hástert. Lítið svosem merkilegt við það í sjálfu sér, oft les maður rökleysur kristinna manna í hinu kristilega Morgunblaði. En ég hjó eftir einu.

Ég hafði lesið greinina áður!

Fjórða júlí skrifaði þessi sami náungi grein um tilgang lífsins í Morgunblaðið þar sem gengið var út frá hreinni efnishyggju, Gvuð kom þar hvergi nærri. Að öðru leyti er þetta nákvæmlega sama greinin, copy-paste, bara búið setja Gvuð inn í stað efnishyggju/tómhyggju.

Er þetta eitthvað geggjað grín í Morgunblaðinu, stílæfingar? Væri ekki nær að nýta plássið og birta greinina hans Sigga?

fjölmiðlar
Athugasemdir

JBJ - 19/07/03 01:11 #

Nei sko nú er í tísku hjá bláliðum að vera kristnir og góðir og gegnir Bandaríkjamenn!

Þeir bræður eru allir þeir bláustu sem til eru, faðir þeirra líklega afar stoltur.

Ragnar - 21/07/03 09:53 #

Stundum finnst mér allt í lagi að fólk fái ekki að skrifa í dagblöð. Datt þetta í hug þegar ég las þessa færslu hjá þér. Vona samt að Siggi fái sína birta