Örvitinn

Ekki fyrirmyndarfaðir

Gyða fór í vinnuna í morgun, eitthvað sex mánaða uppgjör sem þarf að ganga frá. Ég og stelpurnar erum heima í hrikalegri leti. Höfum ekki ennþá farið úr húsi.

Kolla er núna í tölvunni, að skoða barbie vefinn en Inga María situr hjá mér í sófanum og horfir á stubbana.

Þetta er ekki til fyrirmyndar, ég veit það :-| en stelpurnar eru í góðum gír, voðalega kátar og hressar.

dagbók prívat
Athugasemdir

Gyða - 04/08/03 21:12 #

jú þú ert alltaf fyrirmyndirfaðir. En verst að ég hefði sem sagt geta verið á bílnum fyrst að þið fóruð ekkert :-(