Örvitinn

Jane's Addiction - three days

Mér brá dáldið í fyrradag þegar ég skipti yfir á popptíví og sá þar myndband með Jane's Addiction. Það band hefur lengi verið í dálitlu uppáhaldi hjá mér, keypti mér þrjá diska með þeim í gamla daga og hef mikið hlýtt á.

Ég er dáldið spenntur fyrir að heyra nýja efnið þeirra, hvort það standist samanburð við gamla efnið.

ritual.jpg

Í tilefni þess hef ég ákveðið að dusta rykið af flokknum lag dagsins og skella inn lagi af disknum Ritual De Lo Habitual. Lagið sem ég valdi er stórlagið three days og á það einkar vel við í dag á þriðja degi leikskólaaðlögunar. Lagið er tíu mínútur og skráin því nokkuð stór, hafið þó ekki áhyggjur, serverinn er á Íslandi! Þekktasta lagið af þessum disk er vafalaust Been caught stealing sem naut nokkurra vinsælda á sínum tíma, ég hef þó lengi haldið meira upp á þetta lag. Texti lagsins.

Jane's Addiction - Three days ~10MB]

búinn að fjarlægja skrána

lag dagsins