29.08.03

Ræktin í morgun

Skellti mér í ræktina eftir að ég skutlaði stelpunum á leikskólann. Hitti Didda bróður í World Class og tók æfingu með honum.

Tókum fætur í dag, ég hef alveg sleppt því í sumar útaf fótboltanum. Bæði vegna þess að ég fæ alltaf svo fínar harðsperrur eftir og vegna þess að ég var að togna nokkrum sinnum í boltanum.
Ég spái massívum harðsperrum um helgina.

Þetta var fín æfing þó þyngdirnar hafa ekki verið miklar. Rakst á Jóa einkaþjálfara og ræddi við hann um að taka mælingu bráðlega, hringi í hann í næstu viku og bóka tíma.

29.08.2003 11:58 heilsa prívat
Athugasemdir

Regin - 29/08/03 14:41 #

Það er hugur í þínum mönnum svona í byrjun deildar! Þetta er rétta hugarfarið.

Title could be beyond us: Gerrard

Matti - 29/08/03 15:24 #

Mínir menn eru bara byrjaðir að nota sálfræðina ;-)

Mynd sem Kolla teiknaði af mér

Nýjar athugasemdir

www.flickr.com