Úttroðinn af humar

Það er nákvæmlega ekkert að því að vera pakksaddur af humar og örlítið kenndur af hvítvíni.

Vorum í kvöldmat hjá tengdó, þau keyptu annarsflokks humar um daginn og buðu til veislu í kvöld. Reyndar er ég sannfærður um að þetta annarsflokks humar dæmi er eitthvað tengt skattsvikum því það var nákvæmlega ekkert að þessum humar sem við borðuðum í kvöld. Einhverjar skeljar brotnar en lang stærstur hluti var klassahumar. Kæmi mér ekki á óvart að menn afskrifi brotinn humar ríflega og græði svo vel á að selja hann (svart).

Stebbi mágur bauð upp á hrefnu í forrétt, borðuðum hana hráa með sojasósu. Yndislegt.

30.08.2003 22:10 matur
Athugasemdir

Már Örlygsson - 30/08/03 23:13 #

Gleðilegt humar! :-)




ath. póstfangið birtist ekki á síðunni

má sleppa

(næstum öll html tög virka, einnig er hægt að nota Markdown rithátt)

Mynd sem Kolla teiknaði af mér

Nýjar athugasemdir

www.flickr.com