Örvitinn

Kolla veik

Kolla er veik, með hita og ælupest. Búin að sofa í fanginu á mér stóran hluta dagsins. Ælir svo af og til í fötu. Þrátt fyrir að vera slöpp nýtur hún þess líka aðeins að fá alla þessa athygli.

Sefur núna við hlið mér í sófanum, líður betur þegar hún sefur.

Við ákváðum að slá því á frest að heimsækja litlu frænku mína, viljum ekki bera með okkur sýkingu. Alltaf hætta að maður beri þetta með sér sjálfur, þó maður tæki börnin ekki með.

fjölskyldan prívat