Örvitinn

Erfið nótt

Kolla var ennþá með hita í gærkvöldi og er því heima í dag. Hún var frekar slöpp um ellefu í gærkvöldi, vaknaði þá vælandi. Ég gaf henni hitastillandi verkjalyf og hún svaf vel til morguns.

Inga María svaf aftur á móti agalega illa, vaknaði á klukkutíma fresti í nótt. Ég þurfti að taka hana í fangið og róa hana í hvert skipti, ekki var nóg að fara til hennar eins og vanalega. Klukkan sex í morgun tók ég hana svo yfir í rúm til okkar og ég fór á fætur með henni rétt fyrir sjö.

fjölskyldan prívat