Litla frænka mín heimsótt - nýjar myndir

Skaust í heimsókn til Jónu Dóru og Óttars og kíkti á litlu frænku mína. Tók nokkrar myndir og setti inn á myndasíðuna ásamt myndum sem þau tóku á fæðingardeildinni. Bætti einnig inn ýmsum myndum frá síðasta mánuði.
Sú litla var ósköp róleg þegar ég mætti í dag, hafði vakið um morgunin og var orðin þreytt.
Ég var alveg búinn að gleyma því hvað lítil börn eru óskaplega lítil.
Ég og Gyða ætlum að kíkja örstutt í heimsókn núna á eftir, skutlum stelpunum til mömmu á meðan.
Athugasemdir
Sirry - 05/09/03 22:23 #
Algjör dúlla :C) Mig langar í svona :C)