07.09.03

Tölvuvesen: afrita uppsetningu milli diska

Það er ekki jafn auðvelt og ég hélt að afrita allt setupið yfir á nýja diskinn. Windows fer í fýlu, jafnvel þó ég búi til emergency repair disk og reyni að plata það til að laga nýja diskinn útfrá setupinu á þeim gamla.

Það sem ég gerði semsagt var að kópera allt draslið með scopy, skipta svo nýja disknum sem aðal master, ræsa á windows2000 setup disknum og reyna að "laga" nýja diskinn þaðan. Gekk ekki :-(

Það er hægt að nota einhver tól eins og t.d. ghost til að gera þetta, en ég hef ekki aðgang að því. Best að skoða google/deja betur.

07.09.2003 09:28 tölvuvesen
Athugasemdir

Óskar - 07/09/03 21:46 #

Matti, þú verður að nota Ghost. Annað er dæmt til að mistakast. Þræl auðvelt í notkun og svín virkar.

Matti - 07/09/03 22:32 #

Jamm, held ég reyni að redda mér Ghost á morgun, ég er búinn að flytja allt yfir á alveg fáránlega flókinn máta.

Nýji diskurinn er núna kominn í aðalhlutverk og flest virðist virka, Gyða kemst á netið og í Outlook. En það eru furðulegir hlutir í gangi, textann (tja, resource) vantar í ýmis dialog box. Þetta var líka að ske í Outlook en Office setup forritið býður upp á repair option sem, furðulegt nokk, lagaði allt Office klabbið.

Matti - 08/09/03 22:20 #

Notaði Ghost, reddaði þessu á 30 mínútum vandræðalaust. Gleymdi reyndar að taka afrit af movies og mp3 folderunum (sem ég hafði eytt af gamla disknum til að flýta fyrir afritun) en ég redda því stöffi aftur.

Mynd sem Kolla teiknaði af mér

Nýjar athugasemdir

www.flickr.com