Stress
08:30
Ég er stressaður!
Er að fara með stelpurnar í leikskólann, skelli mér svo í ræktina með Didda. Verst að það er ekki fýsilegur kostur að taka gemsann með í gufuna. Sleppi gufunni í dag.
12:00
Ennþá ekkert gerst.... á ég að vera æðrulaus. Ég kann ekki að vera æðrulaus.
13:00
Ég ætla að leggja mig í sófanum.
14:00
Ekki gekk það mjög vel (að leggja sig þ.e.)
14:20
Ætla að dunda mér í Playstation2.
17:10
Búinn að sækja stelpurnar og versla í matinn. Ætla að elda lasagna, alvöru lasagna,ekki eitthvað pakkadrasl. Ennþá ekkert gerst!
20:00
Þetta gerist greinilega ekki í dag, sjáum til á morgun.
01.10.2003 08:30
dagbók
prívat