05.10.03

Er eitthvað að frétta?

mynd af brunch borðinu

Nei, það er ekkert að frétta.

Við fórum í brunch til mömmu og pabba í dag þar sem þau eru að fara á tónleika í kvöld. Fínn matur, kaka í desert og svo ílengdumst við hjá þeim til rúmlega sex. Spiluðum meðal annars Scrabble en það hef ég ekki gert í langan tíma.

Óvæntu fréttir dagsins eru þær að það er væntanlega skilnaður í stórfjölskyldunni. Kom mér í opna skjöldu svo ég segi nú ekki annað. Sjáum samt til hvað gerist, það er vonandi ekki öll nótt úti enn.

05.10.2003 20:13 dagbók prívat
Mynd sem Kolla teiknaði af mér

Nýjar athugasemdir

www.flickr.com