...Mennirnir voru teknir til frekari skoðunar og við röntgenskoðun kom í ljós að þeir voru með smokka með kókaíni uppi í endaþarmi. Voru mennirnir settir í gæslu uns efnin skiluðu sér niður af þeim og liggur fyrir játning um að fíkniefnin hafi átt að fara í söludreifingu hérlendis.
Tekur það ekki dáldið glansinn af kókaíninu að því sé smyglað til landsins í endaþarminum á einhverju burðardýri. Mér finnst ákveðin kaldhæðni í því að eiturlyfi uppanna sé smyglað til landsins í görnum.
Kannski þetta geti verið gæðamerki. "Þetta kókaín kom til landsins í görninni á fyrirsætu, hún hefur ekki haft hægðir í þrjú ár"
, "Við notum einungis grænmetisætur við innflutning okkar"
.
Mannstu ekki eftir herferðinni gegn eiturlifum mynd af drullugum smokki, hvar hefur þitt efni verið eða eitthvað slíkt (var allavegana skilaboðin man ekki hver textinn var). Þetta var á öllum strætóum fyrir kannski ári jafnvel tveim árum.
Það er allt lífrænt í dag og líka flutningarnir. he he he
|
www.flickr.com
|