Klanið og slagsmálahundur í Japan
Árni Þór bætti mér inn á klanið eftir að hann uppgötvaði bloggið mitt. Helvíti tók það hann langan tíma :-)
Árni er vinur hans Bjarna sem var með mér í Verzló. Bjarni er einmitt farinn að blogga frá Japan en þar þykist hann vera að læra eitthvað á milli þess sem hann lætur heimamenn berja sig á karateæfingum. Bjarni er skemmtilegur penni, ég vissi ekki að hann hefði þetta í sér. Hélt það væri búið að berja úr honum allt vit :-)
Klanið er komið inn á tenglasíðuna, Bjarni er búinn að vera þar í einhvern tíma.
Athugasemdir