Örvitinn

Sofandi í stiganum

Þegar Gyða fór að sofa í gærkvöldi gekk hún fram á Kollu sofandi í stiganum upp á þriðju hæð. Kolla fór á fætur í gærkvöldi, gat ekki sofnað sagði hún mér áðan, klæddi sig í föt og rölti af stað.
Áróra sá hana tvisvar og sagði henni að fara aftur upp, því hefur Kolla væntanlega sest nógu ofarlega til að Áróra sæi hana ekki og sofnað að lokum.

Kolla sofandi í stiganum
fjölskyldan