Tannsteinn

Ég fór í árlegu heimsókn til tannlæknis í morgun. Eins og vanalega var ekkert að, það hefur ekki verið gert við skemmd í kjaftinum á mér síðan 1989.

Í heimsóknum mínum er rútínan alltaf sú sama, "rosalega er hann með fínar tennur" segir aðstoðarkonan "ef allir væru með svona fínar tennur færu allir allir tannlæknar á hausinn" segir Hannes tannlæknir og hreinsar svo tannsteininn. "Þú ferð með þessar tennur í gröfina", segir hann í hvert skipti.

Í morgun fékk ég áhugaverðan fyrirlestur um tannsteinamyndun, orsök og afleiðingar.

Eina aðgerðin sem ég hef farið í hjá tannlækni síðustu árin er þegar endajaxlar voru rifnir úr mér fyrir nokkrum árum. 1999 hafði ég ekki farið til tannlæknis í tíu ár. Var farið og verkja og kíkti til Hannesar sem reif jaxlana fyrirhafnarlítið úr mér. Eftir það hef ég svo mætt til hans samviskusamlega einu sinni á ári, setst í stólinn í fimmtán-tuttugu mínútur og tek við kveðju til mömmu.
Ég man aldrei eftir að skila kveðjunni.

13.11.2003 17:15 heilsa
Mynd sem Kolla teiknaði af mér

Nýjar athugasemdir

www.flickr.com