Örvitinn

Afmælisboð

Þá er afmælisboðinu lokið, Inga María var hress með þetta held ég. Dálítið hissa á pakkaflóðinu og öllu fólkinu. Við gáfum henni örkina hans Nóa, já ég er svona ótrúlega líbó :-P Kolla komst svo að því að maðurinn á skipinu var jólasveinninn sjálfur, enda vel skeggjaður. Það læt ég gott heita.

Ég tók að sjálfsögðu eitthvað af myndum en var samt latari nú en oft áður. Myndirnar úr boðinu er komnar á myndasíðuna.

Gyða stóð sig eins og hetja, veitingarnar voru glæsilegar. Það er langt síðan ég hef haft svona litlu hlutverki að gegna. Það eina sem ég fékk að gera var kökukrem á eina köku og aðstoð við tiltekt, annars sá Gyða um þetta allt saman.

Baddi reddaði símatenglinum fyrir mig þannig að núna er ADSL routerinn kominn aftur inn í búr, hann var svona eina mínútu að þessu :-)

dagbók