Örvitinn

Léleg mæting á æfingar

Hún var frekar dapurleg, mætingin á æfingu í kvöld. Við vorum fimm sem mættum, enduðum á þvi að spila fótbolta með hópnum sem hafði völlinn á undan okkur. Þeir tóku því fegins hendi að geta spilað áfram.

Ég er drullufúll með þessa mætingu, nenni ekki að standa í því að reka á eftir fullorðnum mönnum að mæta á æfingar. Það hafa um tuttugu manns mætt á æfingar í haust/vetur, mest fjórtán í einu.

Þetta er frekar pirrandi þegar maður er að eyða tíma í að redda velli.

boltinn