Örvitinn

Muse í kvöld

Jæja, tónleikarnir með Muse eru í kvöld og ég hlakka til. Merkilegt hvað það er gaman afð fara á rokktónleika, jafnvel þó maður sé orðinn gamall kall og sitji í stúkunni. Ég myndi hvort sem er ekkert sjá á sviðið ef ég stæði á gólfinu.

Davíð hringdi áðan, hann kemst ekki snemma í röðina en ég mæti tímanlega til að ná góðum sætum. Vonandi nennir einhver að standa í röðinni með mér :-) Ég býð reyndar ekki upp á bjór eins og Davíð síðast - en ég skal segja einhverjar skemmtilegar slúðursögur í staðin :-P

11:05

Regin kemst ekki snemma þannig að væntanlega húki ég einn í röðinni í kvöld, a.m.k. fyrstu þrjú korterin eða svo. Spurning um að taka með sér bók :-)

dagbók