Örvitinn

Saddam handtekinn

Það er aldeilis, búið að handtaka Saddam. Þeir hafa víst sannreynt að þetta sé hann en ekki tvífari með DNA prófi. Nú er spurning hvort þetta breytir einhverju. Sjónvarpsútsending verður rofin á RÚV klukkan tólf, ætli það tengist þessu? Jújú, þetta er bein útsending frá fréttamannafundi Paul Bremer. Bremer lætur bíða eftir sér bölvaður... ekki merkilegt sjónvarp að horfa á fólk standa og glápa út loftið...

Vonandi hætta þeir að fjalla um Keiko í bili blessaðir fjölmiðlarnir.

Hverjir ætli það hafi verið sem misstu stjórn á sér þegar myndirnar af Saddam voru birtar. Flestir í salnum fögnuðu en þrír-fjórir höfðu ekki stjórn á sér og það þurfti að róa þá niður. Bogi var að segja að þetta hefðu verið Íraskir blaðamenn. Djöfull að vera ekki með fjölvarpið...

pólitík