Örvitinn

Hrikalega syfjaður

Það var hugsanlega ekkert alltof skynsamlegt að fikta í uppsetningu á þessu bloggi til þrjú í nótt. Ég fór á fætur rétt rúmlega átta morgun og er orðinn hálf dasaður af þreytu.

Gyða fór með Áróru og Sóley vinkonu hennar í Smáralind að sjá Idol, mamma reddaði þeim miðum. Ég, Kolla og Inga María erum saman í góðum gír. Stelpurnar eru í hinni tölvunni að leika sér. Inga María lagði sig seint í dag, var vakin af lúrnum klukkan fimm þannig að það eru litlar líkur á að hún sofni snemma. Ætli við horfum ekki bara saman á Idol í sjónvarpinu, ég gæti gefið þeim snakk og sofnað í sófanum fyrir framan sjónvarpið, þær vekja mig eflaust ef eitthvað kemur uppá :-O

dagbók